Helvit.is vann 3 verðlaun á Webby Award

Posted on 28th January 2012 in Innlent

Verðlaun voru veitt í 11 flokkum á Webby Award í ár, en helvit.is náði að krækja sér í þrennu á verðlaunahátíðinni. Það var fyrir tilviljun að dómnefnd rambaði inn á heimasíðu helvit.is og valdi hana sem sigurvegara í 3 flokkum.

En helvit.is var í fyrsta sæti í eftirfarandi flokkum:

Webby Special Achievement
Webby Breakout of the Year
Webby Artist of the Year

Við hjá helvit.is þökkum kærlega fyrir okkur, þetta var frábær veisla sem okkur var boðið í út til Las Vegas, það er ekki á hverjum degi sem lítil hugmynd fæðist og verður svona stór eins og helvit.is er orðið, eigum við það allt tryggum lesendum að þakka.

 

Unnið að snjómokstri á Ísafirði

Posted on 27th January 2012 in Innlent

Unnið er nú hörðum höndum við að moka snjó á Ísafirði en þar er bærinn búinn að vera lamaður og ekki möguleiki að komast leiða sinn þar, hús hafa horfið í snjó og enginn tilgangur fyrir fólk að moka sig út þar sem þar bíður þess ekkert nema meiri snjór.

Starfsmenn bæjarins vinna nú að fullu við að hreina götur bæjarinns en ekki er hægt að moka snjónum og þurfti að flytja sértilgerðan snjó blása til þess að hreinsa göturnar en hann kom í morgun til Ísafjarðar.

 

Bíll hafnaði í sjónum við Þórshöfn

Posted on 27th January 2012 in Innlent

Upp úr hádegi í dag barst neyðarlínunni tilkynning um að bíl hefði verið ekið glæfralega við hafnarsvæðið í Þórshöfn á Langanesi og endaði þessi glæfra akstur með því að bifreiðin hafnaði í sjónum, Lögregla ásamt björgunarsveit á staðnum voru ekki lengi að ná bílstjóra upp úr sjónum og amaði ekkert að honum, var aðeins skellkaður eins við mátti búast. Ekki fór þó betur þegar reynt var að hífa bifreiðina upp úr höfninni en stulta á kranabíl gaf sig og endaði kranabíll líka í sjónum, var þá fenginn annar kranabíll frá Egilsstöðum til þess að aðstoða, ekki fór betur en svo að hann endaði líka í höfninni. Að lokum kom *SAS maður úr Reykjavík sem var á ferð þarna og náði að hífa alla upp úr sjónum. Við látum myndirnar tala sýnu máli en það var Langgerður Myndadóttir frá Þórshöfn sem sendi okkur þessar myndir.

*SAS – Sérfræðingur Að Sunnan
 

Ódýrt flug til USA

Posted on 26th January 2012 in Innlent

Horizon Air hefur hafið áætlunarflug til Íslands og mun vera með 4 ferðið í viku en félagið rekur einnig sína eigin ferðaskrifstofu og hafa staðið fyrir ferðum til Íslands í fjölda ára, en ekki tókst að semja við Icelandair um verðskrá eftir að samningur þeirra rann út núna um áramót, þess í stað hafa þeir hafið áætlunarflut sjálfir þar sem það þótti hægstæðara.

Helstu kostir þess að fá Horizon Air til Íslands er að þar sem þeir vinna helst í því að selja ferðir til Íslands munu þeir bjóða upp á harða samkeppni í verðum frá Íslandi til Bandaríkjana, talsmaður Horizon sagði að enn er verið að vinna í því að útbúa verðskrá og Íslenska heimasíðu félagsins en meðan það er þarf að versla miða í gegnum aðal heimasíðu félagsins í Bandaríkjunum www.horizonair.com en á meðan ekki er búið að koma heimasíðu í loftið er 50% afsláttur af öllum ferðum frá Íslandi, en núna er tækifæri að komast til Bandaríkjana fyrir aðeins 112 dollara  eða tæpar 14.000 kr. Horizon flýgur á Boston Logan og bjóða einnig upp á pakkatilboð með hótel og bílaleigubíl í Bandaríkjunum og er hægt að skoða ýmisleg tilboð á heimasíðu þeirra en búið er að koma upp sérstökum tilboðum fyrir Íslendinga þar.

 

Bón sem dugar í allt að 5 ár

Posted on 21st January 2012 in Innlent

Algjör bylting var í dag, en Bónvaktin í Reykjanesbæ hefur verið að þróa nýja tegund af bóni fyrir bíla síðustu 5 árin hefur framkvæmdastjóri þessi Guðmundur Falk haft hugann allann við það að hanna og þróa nýtt bón þannig að ekki þurfi að bóna bílinn nema einu sinnu á 5 ára fresti, upprunalega var lagt af stað með þá hugmynd að þurfa þess bara einu sinni svo aldrei meir, en aðal vandamálið var alltaf að halda háglans áferð á lakki bílsins, nú á dögunum tókst Guðmundi að koma í veg fyrir það að gljáinn myndi dofna niður eins hratt.

Galdurinn á bak við nýja bónið er að það þarf sérstaklega að hreinsa lakkið á bílnum áður en það er sett á, til þess hefur Guðmundur hannað í samstarfi við Frigg sápu sem látin er liggja á bílnum í um fjórar klukkustundir en við það hreinsast allt eldra bón og önnur drulla úr lakkinu, síðan er farið yfir með sérstökum lak hreinsir sem endurnýjar lakkið á bílnum, síðan fer hann í nýja bónið en það tekur upp undir 5 tíma fyrir meðal fólksbíl að setja það á, að því loknu þarf eigandi bílsins aðeins að þrífa hann sem sérstakri sápu sem Frigg framleiðir einnig þegar hann vill fá gljáann aftur upp í bílnum, tjara og önnur drulla festist ekki lengur við bílinn og aðeins dugar að nota þessa sápu.

Aðspurður svaraði Guðmundur að ekki væri komið nafn á þetta nýja bón en óskar hann eftir hugmyndum frá hressum bíleigendum og mun hann bjóða þeim sem kemur með besta nafið yfir þetta upp á fría meðferð á bílinn sinn með nýja bóninu. Er þetta ekki dýrt þar sem þetta tekur svona langan tíma? Nei heldur betur ekki, ég get í raun þar sem að  biðtími er langur verið að vinna í allt að 20 bílum á dag, þannig næ ég að bjóða þetta á sambærilegu verði og hefðbundið bón en það er um 8.900 kr fyrir fólksbíl.